|
Tekið úr síðuni OKUR! OKUR! OKUR!
Ég á 9 ára dóttur sem þarf að fá gleraugu og sagði
augnlæknirinn okkur að Tryggingastofnun ríkisins greiddi fyrir þau. Við
fórum af stað til að skoða og byrjuðum á að fara í
Gleraugnasmiðjuna. Þar fann dóttir mín falleg gleraugu og
ákváðum við að taka þau, þá er okkur sagt að
Tryggingstofnun ríkisins greiði 7000 krónur, hefur það örugglega
dugað einhvern tímann fyrir gleraugum en ekki í dag. Þegar búið
var að reikna 7.000 krónurnar inn í verðið áttum við að
greiða 25.000 krónur, ég átti ekki til orð,
þvílíkt OKUR. Við hættum við að kaupa gleraugun og
ákváðum að kanna verðið annarsstaðar. Við fórum
í verslunina Augað en þar var verðið svipað og í
Gleraugnasmiðjunni.
Þá sagði strákurinn minn mér að það væri
tilboð í Prooptik gleraugnaverslununum. Við fórum þangað og viti
menn, þar voru augnumgjörðir fríar fyrir börn og þegar 7.000
krónurnar voru reiknaðar inn í verðið, þurftum við aðeins
að borga 4.900 krónur fyrir gleraugun.
Lesið meira hérna, http://this.is/drgunni/okur1604-1773.html
|
|